Kennari:
Kristbjörg Anna Þórarinsdóttir
Aðstoðarkennari:
Damjan Dagbjartsson
Eðlisfræði 1R og 1V
Vinnustofa 1
Háskóli Íslands
12. ágúst 2026
1
Vigrar
Kassi situr á borði og hreyfist ekki. Af hverju? Teiknið mynd af kassa á borði. Hvaða kraftar verka
á kassan og í hvaða stefnu?
Teiknið kraftana inn á myndina. Skiptir máli hvar þeir
• Byrja?
• Enda?
Annað lögmál Newtons er
F = ma
(1)
þar sem F er kraftur, m er massi og a er hröðun. Á vinstri hlið jöfnunnar eru allir þeir kraftar sem
verka á massan m og ef F 6= 0 , þá fær massinn m hröðun a. Við munum byrja á því að einblína á
kraftana sem verka á massa m og förum í annað lögmál Newton í næstu vinnustofum.
Á milli massa verkar kraftur, sá kraftur sem við finnum mest fyrir er krafturinn milli okkar og
jarðarinnar (Hversvegna finnum við meira fyrir kraftinum milli okkar og jarðarinnar, en okkar
og td næstu manneskju? ). Við köllum þennan kraft þyngdarkraft og táknum sem Fg . Þessi
þyngdarkraftur verður til þess að allir hlutir finna fyrir hröðun sem við köllum þyngdarhröðun
táknaður með g. Hægt er að meta þyngdarhröðun jarðar með
ME
(2)
r2
þar sem G er þyngdarfasti, ME er massi jarðarinnar og r er fjarðlægð frá miðju jarðarinnar. Því fjær
sem við förum frá yfirborðinu, því minni hröðun, en almennt er hér talað um að þyngdarhröðunin
sé g = 9.82 m/s2 . (Þyngdarhröðunin var mæld með mörgum markverðum aukastöfum í verklegu
stofunni, þar inni er plagg með nákvæma gildinu.) Og þyngdarkrafturinn er þá
g=G
F =m·g
Í hvaða átt stefnir þyngdarkrafturinn?
Skoðum aftur kassan á borðinu. Er hann á hreyfingu? Við vitum að það verkar kraftur F = mg á
kassan, þið getið staðfest það með því að ýta kassanum fram af borðinu. En fyrst kassinn er ekki á
hreyfingu þegar hann liggur á borðinu, þá verður að vera einhver annar kraftur sem er jafn stór en
verkar í öfuga stefnu, annars fengi kassinn hröðun a (meira um það seinna).
Fg ± ? = ma
(3)
Hvaðan gæti sá kraftur komið?
Við köllum kraftinn sem verkar frá undirlaginu á massa m þverkraft FN . Til þess að þessir tveir
kraftar stytti hvorn annan út, þá verða þeir að vera jafn stórir og liggja andsamsíða - Liggja í sama
plani en benda í sitthvora áttina.
Kraftur hefur því bæði stærð og stefnu - VIGUR!!
2
Við getum því notað reiknireglur um vigra til þess að vinna með kraftana. Jafna 1 er því í
rauninni
F~ = m~a
(4)
þar sem F~ og ~a eru vigrar. Við höfum þrjár rúmvíddir, því gæti krafturinn td verið
F~ = (10 N, 5 N, −1 N)
þar sem stökin tákna kraft í x- y- og z- stefnu. En einnig gætum við skrifað þetta sem
Fx = 10 N
Fy = 5 N
Fz = −1 N
Skoðum enn og aftur kassan í upphafi. Hérna liggja kraftarnir bara í eina stefnu. Til þess að setja
upp og leysa svona dæmi er lang best að byrja á því að teikna kraftamynd (force diagram). Þá eru
kraftarnir sem verka á massa m teiknaðir inn á mynd sem vigrar. Hér skiptir stefna örvanna máli,
en ekki stærð örvanna. En myndin þarf að vera skýr og læsileg! ekki pínulítil . Þegar við höfum góða
kraftamynd er einfaldra að velja hentugt hnitakerfi svo það sé þægilegt að leysa dæmið. Teiknið
mynd af kassanum ásamt kröftunum sem verka á hann. Hvaða hnitakerfi er hentugt hérna?
Skiptir máli hvort við veljum að niður sé neikvætt eða jákvætt?
Nú skulum við skoða ef kassanum er ýtt fram og aftur um núningslaust borð. Unnar Arnalds ýtir í
kassan með kraftinum FU samsíða borðinu og hann hreyfist, bætið þessum krafti við á
kraftamyndina. Er þessi kraftur samsíða eða hornréttur á Fg ? en FN ? Skilgreinið hnitakerfi svo
x-sé samsíða borðinu og setjið upp kraftajafnvægi Kraftajafnvægi köllum við þegar við tökum
saman krafta sem liggja í sama plani.
Fx =
Fy =
Ef Unnar tífaldar kraftinn sem hann notar til að ýta á kassann, hvernig hefur það áhrif á Fg ?
Hvað merkir hugtakið línulega óháðir virgrar? Í hvaða áfanga er fjallað um það?
Fyllið inn einfalt 3 × 3 fylki með línulega óháðum vigrum
A=
Kraftar sem eru hornréttir hvorn eru línulega óháðir, og við getum skrifað kraft sem fylki
Fx 0 0
F = 0 Fy 0
0 0 Fz
3
Við nýtum okkur það að kraftar sem verka hornrétt á hvorn annan eru línulega óháðir, og
þessvegna er alltaf (oft) byrjað á því að velja hentug hnitakerfi sem einfaldar dæmið sem mest,
eftir það eru kraftarnir þáttaðir upp í viðeigandi hluta. Þess vegna þurfum við að kunna
reiknireglur sem gilda fyrir vigra.
Reiknireglur um vigra
Þrír kraftar verka á bolta
~ = (5, −2, 0) N
A
~ = (10, 0, 0) N
B
~ = (7, 5, 0) N
C
Fyrsta stakið eru kraftarnir sem verka í x−plani, svo y− og svo z. Heildarkrafturinn fæst með
samlagningu vigranna,
Fheild = A + B + C = (22, 3, ) N
Hvernig á að leggja saman vigra? Finnið síðasta stakið í Fheild Við getum því hugsað um þessa
þrjá krafta sem einn heildar kraft Fheild , sem við getum líka skrifað sem
Fx = 22 N
Fy = 3 N
Fz = 0 N
eða
F~heild = 22 Nî + 3 Nĵ + 0 Nẑ
Með reiknireglum um vigra getum við þá fundið stærð kraftsins sem verkar á boltann
|F~ | =
q
Fx2 + Fy2 + Fz2
eða hornið sem krafturinn myndar við td x-ás (sjá næstu bls.)
tan θ =
Finnið hornið θ.
3N
22 N
Við getum líka fundið horn milli tveggja vigra
F~1 = (10, 1) N
F~2 = (2, 7) N
með (Er þessi jafna á formúlublaðinu? )
cos θ =
F~1 • F~2
|F~1 ||F~2 |
4
(5)
þar sem F~1 • F~2 er innfeldi, sem er stakvíst margfeldi á tveimur vigrum
F~1 • F~2 = 10 N · 2 N + 1 N · 7 N = 27 N2
Hver er lengd vigranna?
|F1 | =
|F2 | =
athugið eininguna í jöfnu 5, hver er einingin í nefnara og teljara? Reiknið hornið
cos θ =
θ=
Við munum nýta okkur reiknireglur vigra í gegnum allan áfangann til þess að setja upp og leysa
flókin dæmi.
Kassi á skáplani
g
θ
Gerum ráð fyrir að kassinn sé kyrrstæður. Teiknið þyngdarkraftinn og þverkraftinn inn á
myndina. Eru FN og Fg samsíða? Veljið hnitakerfi svo y-ás sé samsíða FN og svo Fg og teiknið inn
í hnitakerfið. Veljum að niður og til vinstri sé jákvætt - hægri og upp er neikvætt.
y
y
x
x
Hvaða horn mynda kraftarnir við x− og y ásana? Teiknið ofanvarp vigranna á x og y ás fyrir bæði
tilfellin. Til þess að við getum leyst þetta dæmi þá verðum við að skipta kröftunum upp í hluta
sem eru samsíða x-ás og y-ás. Það gerum við með því að skoða ofanvarp vigranna.
5
cos sin tan
a m m
l l a
l
m
θ
a
þar sem l er langhlið, a er aðlæg hlið og m er móthlið. Svo eru til margar leiðir til þess að leggja
reikniregluna á minnið (a-m-m-a i-l-l-a eða langa langa amma ... eflaust fleira).
Dæmi: Langhlið á þríhyrningnum að ofan er 20 cm löng og hornið er 30°. Hvað er þá a og m?
cos θ =
a
l
a = l cos θ
a = 20 cm · cos(30)
m
sin θ =
l
m = 20 cm · sin(30)
Reiknið ofanvarp vigranna fyrir skáplanið. Þið getið gefið ykkur að massi kassans er m = 10 kg og
þyngdarhröðunin er g = 9.82 m/s2 .
Þegar þið hafið reiknað ofanvarp vigranna þá skulið þið taka saman stærð kraftanna sem liggur
annarsvegar í x-stefnu og hinsvegar í y-stefnu.
Hnitakerfi samsíða FN
Fx =
Fy =
Hnitakerfi samsíða Fg
Fx =
Fy =
Það sem þið eigið að taka eftir hérna er að það skiptir ekki máli hvort hnitakerfið er valið. Breytist
niðurstaðan ef við veljum að niður sé neikvætt?
6
Dæmi 1
Skrifið grísku stafina í bæði hástöfum og lágstöfum
• Alpha
• Beta
• Gamma
• Phi
• Psi
• Theta
• Omega
• Sigma
• Lambda
Skrifið forskeytið sem táknar þessa stærð og setjið fram sem scientific notation
• 1000000000
• 1000000
• 1000
• 1
• 0.01
• 0.001
• 0.0000001
• 0.000000001
Dæmi 2
Vector A is in the direction 39.0° clockwise from the −y-axis. The x-component of A is
Ax = −17.0 m. Start by drawing a coordinate system.
A. What is the y-component of A ?
B. What is the magnitude of A ?
7
Dæmi 3
You normally drive on the freeway between San Diego and Los Angeles at an average speed of
105 km/h , and the trip takes 2 h and 20 min . On a Friday afternoon, however, heavy traffic slows
you down and you drive the same distance at an average speed of only 68.0 km/h.
A. How much longer does the trip take?
Dæmi 4
A bird is flying due east. Its distance from a tall building is given by
x(t) = 27.0 m + (12.3 m/s)t − (0.0360 m/s3 )t3 .
A. What is the instantaneous velocity of the bird when t = 5.00 s ?
1
Dæmi 5
The position of the front bumper of a test car under microprocessor control is given by
x(t) = 2.17 m + (4.80 m/s2 )t2 − (0.100 m/s6 )t6
A. Find its position at the first instant when the car has zero velocity.
B. Find its acceleration at the first instant when the car has zero velocity.
C. Find its position at the second instant when the car has zero velocity.
D. Find its position at the second instant when the car has zero acceleration.
Dæmi 6
A small block has constant acceleration as it slides down a frictionless incline. The block is
released from rest at the top of the incline, and its speed after it has traveled 7.20 m to the bottom
of the incline is 3.60 m/s.
A. What is the speed of the block when it is 3.80 m from the top of the incline?
8