1. INNGANGUR (3 mín.) Sandra
Við ætlum að taka umræðuna úf frá hinsegin fræðum og einbeita okkur að málefnum
hinsegin nemenda í menntakerfinu. Allar höfum við upplifað mikilvægi þess að
menntastofnanir leggi sig fram við að búa til öruggt samfélag fyrir hinsegin
nemendur. Sem dæmi má nefna að ég hef kennt í stórum hópi nemenda þar sem var
kynsegin nemandi. Einn daginn vildi sá nemandi koma opinberlega út úr skápnum í
kennslustund og lét alla vita að þau væri kynsegin og vildi láta ávarpa sig með
fornafninu þau. Mér fannst það magnað hjá þeim og tók því þannig að þau hafi
upplifað sig í öruggu rými í kennslustofunni. En svo hef ég líka verið með nemanda
sem barði í borðið og sagði að Samtökin 78 ættu ekki að vera með innrætingu í
skólum. Áður en við höldum áfram með umfjöllunina þá ætlum við aðeins að impra á
merkingu mikilvægustu hugtakanna sem tengjast umfjöllunarefninu.
Skilgreiningarnar koma frá heimasíðunni www.otila.is nema ef annað sé tekið fram.
Hinsegin: Regnhlífarhugtak um þegar fólk er ekki gagnkynheigt og/eða finnur sig
ekki innan hefðbundinna kynjahlutverka eða innan hefðbundins kyns.
Kynsegin: Regnhlífarhugtak undir Hinsegin regnhlífinni. Þegar fólk skilgreinir kyn sitt
ekki samkvæmt því kyni sem þeim var gefið við fæðingu. Sum eru trans, önnur
karlkyn og kvenkyn, enn önnur hvorki karlkyn né kvenkyn og aðrir skilgreina ekki kyn
sitt. Mikilvægt að muna að hér er verið að tala um kynvitund, ekki líffræðileg
einkenni.
Sís: Þau sem aldrei hafa efast um það kyn sem þau fengu úthlutað við fæðingu
Öráreitni: Niðurlægjandi og niðrandi athugasemdir, gjörðir og aðstæður sem eru
viðteknar – hversdagslegar – í samfélaginu okkar. Þau sem verða ekki fyrir því taka
ekki endilega eftir því. Öráreitni á sinn þátt í jaðarsetningu. T.d. þegar einungis er
hægt að merkja við móður og föður barns eða að hafa bara karla- og kvennaklósett /
-klefa.
Inngilding: Markvissar aðgerðir til þess að efla samfélagsþátttöku og rödd þeirra
sem tilheyra jaðarsettum hópum. Snýst um að hlusta á og virða þeirra upplifun og
vinna út frá þeirra reynsluheimi (heimild).
Sú spurning sem við lögðum upp með er: Hvernig líður hinsegin ungmennum í okkar
skólum?